Toto

I Don't Suffer From Insanity, I Enjoy Every Minute of it!!!!!

25.02.2008 17:30:14 / Toto

*******

Nenni ekki að blogga á þessa síðu eins og er!

www.toto.bloggar.is

Farið því á þessa síðu þar mun í blogga á næstunni!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.02.2008 23:41:53 / Toto

*Ekki mikið fyrir breytingar!*

Jæja ætli það sé ekki komin tími á eitt stykki blogg... ég er reyndar ekki alveg að fíla þetta nýja central dót! Síðan mín lítur ekkert alltof vel út:$ Ég tími bara ekki að færa mig yfir í bloggar.is:$

En hvað um það, það eru tvær helgar síðan maður bloggaði síðast!
Fyrstu helgina fór maður í afmæli til hans Gústa sem komst á þrítugsaldurinn 5. febrúar en hún Eyrún átti einnig afmæli þá en hún varð bara 19 ára.
Á laugardaginn plötuðum við Eyrún Ívar og Siggi til Reykjavíkur og auðvitað komu þeir til okkar;) og við vorum bara með lítið teiti í Rósarimanum og skelltum okkur svo á Klúbbinn:)

Svo á miðvikudaginn fór ég í Rósariman og var þar fram á föstudag en þá ég með Ívari austur:lol: og þar gerðum við ekkert nema bara liggja undir sæng og glápa á dvd og Ívar skaut nokkra gaura haha;)

Svo um næstu helgi fæ ég að fara á Þorrablót:d8) Hef aldrei farið á svoleiðis:P Fer með Ívari í sveitinni:) Hlakka til:haha:

10feb08103.jpg picture by vatn

Þórunn sem er ekkert að fíla þetta!


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 16:22:06 / Toto

*Lífið í sveitnni;)*

Hæhæ komin lunes og mig langar að skrifa blogg:haha:
Við mamma erum baka bollur eða meira mamma og ég segi henni bara að baka meira;) ég sé svo um að éta þær:haha:

En ég fór austur um helgina og þar var voða gaman eins og það er yfirleitt;)
Eyrún var einnig í Vík, föstudagskvöldið fórum við til hans Sigga sem var einn heima það var nú voða rólegt sem endaði á því að Haukur, Eyrún & Siggi steinsofnuðu í sófanum rétt eftir miðnætti þannig þá fóru bara öll heim:haha: haha
Á laugardaginn skelltum við okkur aftur til Víkur og fórum upp á tún þar sem Haukur var á snjósleðanum sem við öll fengum að prófa;) voða gaman:haha: Lentum í smá veseni með Pusjó:$ Ívar minn ekki fara aftur að toffærast:*;)
Sunnudagurinn var voða svipaður Ívar og Haukur fóru á sleða meðan ég, Siggi og Eyrún vorum á Game Over;) Ég fékk svo að sitja aftan á hjá Ívari og datt ekkert8) hahaha
Svo gerðumst við Ívar svo dugleg að við þrifum og bónuðum pusjó sem var orðin vel hvítur eftir að vera í rvk!! og nú er að hann orðin voða sætur:haha:

Svo var maður að lita í LOLi áðan voða gaman haha aðeins að rifja upp það sem maður lærði í leikskóla;) nema þá teiknaði maður ekki bein:$ haha

ú Bollur tilbúnar! mmmm...ái heit.....mmmm...

Jæja komið nóg af engu;)


Strákarnir eiga ekki svona svalan sleða haha
Stelpur við verðum að fá okkur svona;) haha

Þórunn Einarsdóttir


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 15:34:22 / Toto

*Fer ekki að koma páskafrí:(*

Hola!

Það er bara komin miðvikudagur og það er næst síðasti dagur þessa fyrsta mánaðar 2008;)

En mér leiðist þannig ég ákvað bara að blogga aðeins er reyndar að taka til eða svona næstum er búin að taka til í skápnum mínum og þá er bara gólfið eftir og þurrka af:lol: Svo get ég farið að læra;)...En tyggjóið mitt er að verða búið:( ég þarf að fara til útlanda og kaupa meira hehe;)

Any who... hann faðir mitt átti afmæli á mánudaginn og varð sá gamli fimmtugur:haha: En hann hélt upp á afmælið sitt á laugardaginn með rosa fínum mat og öllu tilheyrandi....fékk gönguskó frá okkur systkinunum8):haha: og strax farinn að skipuleggja göngu;) haha sem mér líst nú ekkert alltof vel á:$ Svo bakaði ég handa honum nammiköku:haha:

En helgin var svo sem fín:P vorum bara heima hjá Eyrúnu á föstudaginn aðeins að súpa en fórum svo bara upp á stóra hól þar að segja ég, Tommi og Eyrún...Það var fínt nema djöfull var kalt! Og alveg jafn erfitt að labba þarna upp og þegar maður var 5 ára haha:haha:
Svo á laugardaginn var afmælið hans pabba svo fór ég á ball með Eyrúnu og Rúnari og svo voru Tommi og Krissi þarna líka;) Og Fuuulllt af frændfólki mínu hehe enda þorrablót;)

Svo um núna um helgina þá býst ég við að fara í sveitina;) alltaf gaman að fara í sveitinna...:haha:

En mig langar rosalega í sumarið:( þá verður manni ekki kalt á hverjum degi og þá getur maður líka farið í útileigur:haha: Bíð spennt eftir sumrinu

En ég ætla bara að halda áfram að taka til og svo fara læra svolítið

 

Þórunn Einarsdóttir


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 20:35:55 / Toto

*Leynibylgjur gyllta Flóðhestsins*

Jæja bara komin þriðjudagur og ég nenni ekki að læra þannig ég ætla bara að blogga;)
En ú ég skil stærðfræði:haha:

Það er svo sem ekkert búið að ske síðan ég bloggaði síðast:$ fór bara austur um helgina þar sem var bara legið í leti nema ég var rekin út á snjósleða;) hehe sem var bara mjög gaman:haha:
Og fólk festið dekkinn undir bílana ykkar! þau geta dottið af:lol:;)

En næstu helgi verður líka róleg helgi, ætli maður tékki ekki hvað Halli gerir á föstudaginn og svo ætlar hann pabbi gamli að hafa smá afmælismat á laugardaginn þar sem hann er að vera 50 ára gamall:haha: Rosa gaman:P

En nú held ég að ég þurfi að fara hreyfa á mér feita rassgatið ég er verða feit:$ Enda er maður komin í næringarfræði þannig maður ætti að læra hvað sé hollt að borða;)

150320033.jpg picture by vatn
Fann þessa sætu mynd af Týra frá 2003 og bara ný komin til okkar:haha:

...Þórunn...


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 16:38:05 / Toto

*Brakandi snjór í haugum*

Jæja bara þessi fínu dagur í dag:P farin að finnast þessi snjór bara fínn...enda sit ég ekki föst í einhverjum skafl haha:haha:...Það er líka ekki svona kalt eins og í gær:P Það er samt of mikill snjór til að búa til snjóengil:( jájá ég er búin að prufa:$ Búin líka að vera leika mér með hundunum úti þar að segja ég að henda þeim í skafl og sjá þá hverfa haha:haha:

svo finnst mér alltof mikið að læra fyrir fimmtudaga og mánudaga þá á maður bara að læra í öllu...eyddi samt 80 min í að læra áðan (var í gati) og ég náði bara að læra í einu fagi! þetta tekur alltof langan tíma haha

Heyrðu jújú svo helgin búin reyndar tvær síðan ég bloggaði síðast en er það ekki bara fínt:P
Er bara búin að hanga með Eyrúnu, Hugrúnu & Halla þessar helgar og svo hefur fólk komið við;)

Svo býst ég við að fara austur um helgina ef við Eyrún festumst ekki í skafl en hún er nú á svo miklum jeppa að þetta ætti að takast;) Ætli maður verði ekki að kíkja á sjúklinginn minn í sveitinni;):*

En allavega ætla ég að skella mér í lærdóminn á ekki eftir nema 3 fög eftir fyrir morgundaginn;)

Þórunn Einarsdóttir

DSC00352.jpg picture by vatn
Rúntuðum um þar síðustu helgi:P

DSC00363.jpg picture by vatn
Fórum að lita hjá Eyrúnu og skelltum okkur svo í pottinn um síðustu helgi;)

IMG_4141.jpg picture by vatn
Giggsy hvarf í skafl haha:haha:

IMG_4148.jpg picture by vatn
Á endanum var ég orðin ein þar sem Giggsy var kalt... Það tók mig reyndar soldið
langan tíman að ná að standa upp þar sem maður fer bara neðar...


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 23:57:23 / Toto

*nau nau*

Jæja þá er bara árið 2008 gengið í garð;) og það kallar á breytingar, ég er reyndar ekkert mikið fyrir stórvegilegar breytingar enda er síðan enþá svört bara eins haha:haha::$

Allavega var árið 2007 bara mjög gott! nenni ekki að vera þylja allt sem skeði á því enda upplifðu þið það líka;)
Ég held samt að 2008 eigi eftir að verða voðalega gott, maður kemst í ríkið sjálfur, hættir að vera táningur og kemst á þrítugsaldurinn:haha: haha

 Er samt voða lítið að nenna að blogga en mér leiðist þannig þið verðið bara að lifa við það!

Áramótin voru mjög fín og í rólegri kantinum...við erum bara að vera svo gömul haha...nei nei okay!, Allavega byrjaði hjá frænku minni svo fór ég og Halli á rúntinn svo farið til Önnu og svo var nóttinni endað hjá Hafþóri:D

 Nokkrar svipmyndir af jólunum;)

IMG_3859.jpg picture by vatn
Fengum jólasveinana í heimsókn á Þorláksmessu og þeim fannst Giggsy voða skrítin

 IMG_3869.jpg picture by vatn
Einar fékk pakka frá sveinka en hann skyldi ekkert hvað væri í gangi

IMG_3908.jpg picture by vatn
Ég á aðfangadag með húfuna sem Einar litli gaf mér:D

 IMG_3992.jpg picture by vatn
Fór svo í pottinn með foreldrum mínum á jóladag og bjó til þennan fína kall:haha:

jaa svo tók ég voða lítið að myndum af áramótunum

Þórunn Einarsdóttir


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 01:20:12 / Toto

*You know she killed me, took me down to the sea and killed me*

Góða nótt! er samt ekki farin að sofa...hvað segir maður annars eiginlega á nóttinni:|
8 eða tæknilega séð 7 dagar í jólin...Allt tilbúið hjá minni! nema jaa reyndar þyrfti að taka til aftur í herberginu mínu:$ hehe

oohhh svo koma jólasveinarnir til okkar á Þorláksmessu:evil::( Það er svo leiðinlegt...sem sagt ÖLL familyian pabba megin kemur og hittir sveinka! og við erum sko að tala um yfir 30 barnabörn, níu systkini og allir með maka og svo afi og amma!!8| og ég fæ ekki einu sinni pakka!:$ Hjálp?!

En ykkur til furðu þá fór ég í sveitina um helgina;) og fékk að prófa fjórhjólið, fórum niðurí fjöru, fór reyndar ekki hratt en ég fór þó;) kom samt engin snjór eins og sumir bíða spenntir eftir haha. og ekkert vond veður þegar við vorum að fara heim:o:haha:

 Svo kemur áramótin:D ég býst við að maður verði bara á Selfossi nema eitthvað annað komi til greina:D og ég ætla láta pabba kaupa meira en tvær flugelda eins og í fyrra:$:haha:

Hasta Luego - Náði Spænsku;)
Toto


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 13:21:59 / Toto

*Tæknilega séð ekki föst*

Jæja þá er helgin búin og aðeins 14 dagar í jólin! og ég ekki búuin að kaupa neinar jólagjafir:$
En hvað með það ég er að fara með Önnu & Fjólu og fimmtudaginn að versla nema þá auðvitað gjöfina hennar Berthu sem verður afgreidd í dag;)

 Allavega þá fórum við Eyrún í bíóið á föstudaginn af fá okkur nachos;) svo fórum við bara til Eyrúnar að súpa og með okkur voru Halli, Steini & María og Hugrún komu úr bænum til okkar;)
Þá fengum við þá geggjuðu hugmynd að fara til Víkur á laugardeginum þar sem stelpurnar söknuðu víkverjana:P

Svo á laugardaginn skelltum við okkur til Víkur svo fór ég bara í Þórisholtið og stelpurnar til Maríu...Þar sem Ívar var svo þunnur greyið fékk hann þann heiður að keyra með okkur stelpurnar í hringi í Víkinni um kvöldið;) Við tæknilega séð festum okkur ekki í fjörunni hehe

 Á sunnudeginu fórum við Ívar með Sigga og Hauk á Game Over að leita af snjó einhver staðar og fórum í tofærur og tæknilega séð festum okkur ekki á kviðnum haha...Svo var bara engin snjór þannig Ívar tók bara smá rúnt með mig á fjórhjólinu en það var kalt þannig við fórum bara aftur undir sæng... Svo auðvitað þegar við ætluðum að fara var allt komið undir snjó! Alltaf gott veður í Vík my ass!:haha:

 Hasta Luego
toto

 

DSC00179.jpg picture by vatn
Hugrún keyrði þetta á nýja bílnum;)
DSC00187-1.jpg picture by vatn
Komin á Dodge
DSC00188.jpg picture by vatn
Hugrún & María
DSC00201.jpg picture by vatn
Svo eru kindurnar hans Ívar alsberar!
DSC00202.jpg picture by vatn
María & Hugrún niðurí fjöru
DSC00203.jpg picture by vatn
Þar sem við tæknilega séð festum okkur ekki;)...Ívar skiptu um krossa haha


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 21:48:06 / Toto

*Í nótt mun ég deyja*

Já okay það er ekki mánudagur en á morgun ætla ég að vera svo dugleg að læra í stærðfræði að ég á ekkert eftir að hafa tíma til að blogga haha:haha:

Allavega eins og flestir hafa orðið var við þá er skólinn bara búin fyrir utan próf;) En þau eru 6 á 4 dögum og svo getum maður bara sofið og hámað í sig kökur;)

En helgin búin sem var mjög skemmtilegt:) Fór með Ívari í Þórisholt;) og var hann einn heima:) gerðum reyndar ekkert á föstudaginn þar sem ég fékk bara í magan:( En á laugardaginn var farið í Víkinna og dottið í það jaa nema Siggi hann kaus frekar að keyra Dodge heldur en að súpa haha;) Svo eyddum við bara sunnudeginum upp í rúmi og vera þunn yfir dvd:P Voða fín helgi;)

En ég ætla að byrja á því að kíkja í bók og kannksi bara í sturtu;)

Hasta Luego
Toto


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 14:53:58 / Toto

*Skórnir leka!*

Mánudagur sem er nú blogg tími haha;)

Helgin var bara hin fínasta fór með Ívari í sveitina:P voða gaman:haha: Kíktum til Víkur á föstudagskvöldið og rúntuðum ásamt Þránni og Karen, svo laugardaginn fórum við að skjóta og svo um kvöldið fórum við til Víkur aftur að súpa:P

En það eru alveg 4 dagar eftir af skólanum8| svo taka við 6 próf og svo bara jólafrí:haha: Svo gamlárskvöld:P þá ætla ég skjóta upp svoooona mikið af flugeldum:haha: á reyndar eftir að kaupa allar jólagjafirnar...mér finnst eins og jólin ættu að vera fljótlega eftir sumarið svo ég eigi nóg af peningum haha:haha:

En er að spá í að fara læra kannski bara í latínu gat ekki shit í latínuprófi í dag:$

Hasta Lunes;) hehe
Toto


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 16:11:24 / Toto

*Ingólfsfjall er að gjósa!* haha

hey vá bara komin miðvikudagur ég sem er von að blogga á mánudögum:$
En kosturinn við það að blogga á miðvikudegi er að það sé styttra í helgina;) er nú bara að fara austur með Ívari þessa helgi:haha: og svo næstu tvær helgar á maður eftir að liggja í skólabókum;)

Jaa maður gerði svo hvort eð er ekkert um helgina nema rúntaði með Halla og meira af liði, Við Hugrún fórum svo á Kríuna með Tomma og því liði þegar rúnturinn fór að sofa;)
Svo kom Ívar á laugardaginn og við lágum bara í leti...

En aðeins 7 skóladagar eftir af þessari blessuðu önn8|:$ Maður þarf að fara læra!8|
Fer í alveg 6 próf plús 1 munnlegt, nóg að gera;) Jólafríið byrjar svo 12. des

Svo eins og flestir vita er Selfoss búin að vera skjálfa, maður er búin að venjast þessa:haha: Ég held því samt fram að Ingólfsfjall sé að fara gjósa þó það sé ekki eldfjall, eða kannski er bara Grímsnes að fara springa haha:haha:

oohh svo mátti ég ekki gefa blóð áðan:( ég fæ aldrei að gefa blóð! í fyrra mátti ég það ekki því ég var ný búin að fá tatto og nú er það útaf gatinu í eyranu:( núna ætla ég ekki að fá mér neitt og gefa á næsta ári;) Reyndar missti alveg nóg í gær haha...heimski spegill!

Og ég er loksins í jólastuði í fyrsta sinn í 4 ár:haha: og ég ætla sko að njóta þess!

Hasta Lunes
Toto


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 16:46:13 / Toto

*Það er geðveikt mikil þoka hérna!...Þetta er veggur*

Góðan daginn allir:D bara komin mánudagur sem þýðir á morgun er þriðjudagur þoli ekki þriðjudaga þeir eru verri en mánudagar!:$

Allavega fer bráðum að skella í helgi;) hehe...En hún Anna okkar átti nú bara afmæli núna á laugardaginn og skelltum við okkur því í Bláa Lónið, fórum svo út a borða, rúntuðum um og fórum svo á Tropical:haha: (Þar að segja ég, Anna, Erna & Fjóla, svo kom Signý með í lónið;))
Myndir komnar frá því:)

Svo er maður bara að glápa á Top Gear:haha: Þeir eru voða skemmtilegir!

En hvað er samt eiginlega málið með þetta blog.central dót?:| Ég efast um að 100 manns heimsækji síðuna mína á hverjum degi:S

Hasta Luego
Toto


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 15:05:45 / Toto

*Axel! Grænmetissúpa útum allt!*

Helgin búin og mánudagsskólinn líka...

Vill bara byrja á því að þakka fólki fyrir þessa æðislegur helgi;)8) og vonandi verður ekki alltof langt í næstu samkomu;)

Svo fékk ég loksins að komast í Toys r us búðina...hún er stór við Halli eyddum hátt í klukkutíma þarna inni haha:haha:...og ég keypti mér bíl voða voða flottur hann er rauður og hann er Camaro og hann er 1957:haha:

En ég var án efa í leiðinlegasta handboltatíma hingað til! Við byrjuðum á því að hlaupa og hlaupa! meira að segja strákarnir voru þreyttir8| Svo var farið að hoppa! og svo spilað og við stelpurnar hefðum alveg eins getað sitið út í horni:evil: Heimsku strákar! Ekkert leiðinlegra en að spila íþróttur með strákum!! Gera ekkert annað en að einspila og senda aldrei á hitt kynið því þeir halda að þeir séu alltof töff:evil::evil:

En leikhús á morgun jibbý:haha: og svo á Anna afmæli á laugardaginn og þá fæ ég loksins að fara í Bláa Lónið sem stelpurnar eru búnar að lofa að gera í meira en ár:$ haha en það er komið að því og svo ætlum við að fara út að borða allt voða kósý;)

En núna held ég að maður ætti að fara þvo fötin síðan um helgina frekar mikil sukk og ógeðis lykt af öllu haha:$:haha:

Hasta Luego
Toto


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 13:22:51 / Toto

*Nachos & heit ostasósa*

Jæja þá er bara komið að síðasta degi í þessu vetrafrí:| mætti alveg vera lengra sko...

Það er búið að súpa bjór, spila póker, spila Guitar Hero og perrað í gaurum á irkinu um helgina..og svo auðvita étið Nachos...mig langar í meira nachos?:$

Svo um næstu helgi er bústaðurinn hjá Adda þetta er sko allt að skella á;) Ívar bauðst til að keyra á nýja bílnum;)

En núna ligg ég hér upp í rúmi að frosna úr kulda og skanna inn gamlar filmur frá því ég var lítil og sæt;):haha:

Image0015.jpg picture by vatn
Maður var ekki gömul þegar maður var sett í fyrsta Selfoss búninginn;)

Image0017.jpg picture by vatn
Átti það til að sofa bara allstaðar og þá auðvitað með puttann upp í sér:haha:

Hasta Luego
Toto


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 88861
20 ára
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1435 dögum
Myndir 2008